Tvær stúlkur voru skildar eftir til að deyjaaf Ýmsir Höfundar
Tvær átján ára stúlkur fundust látnar á snævi þöktum vegi á Hallandsåsen síðla sunnudagsins 18. janúar 2004 og voru báðar skólausar og fáklæddar. Daginn áður hafði lögreglan fengið tilkynningu um að bíll annarrar stúlkunnar lægi illa skemmdur í skurði. Fjarlægðin frá fundarstað bílsins til stúlknanna var um fimm kílómetrar. Fjöldi spurninga helltist yfir okkur. Hvern eða hverja höfðu stúlkurnar hitt? Af hverju höfðu þær verið skildar eftir á afskekktum malarvegi, án fótabúnaðar og yfirhafna? Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Tvær stúlkur voru skildar eftir til að deyja' i de 485 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 112.594 andre anmeldelser af bøger.