Dóttir ávítarans af Lene Kaaberbøl

Spar op til

1 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Dóttir ávítaransÁvítaraserían #1af Lene Kaaberbøl

Dína hefur erft gáfur móður sinnar, en það er ekkert til að gleðjast yfir. Móðir hennar býr nefnilega yfir þeirri gáfu að geta fengið fólk til að játa allt sem það skammast sín fyrir með því einu að horfa í augu þeirra. Fyrir Dínu eru gáfurnar bölvun og hún gerir allt til að komast hjá því að nota þær. Á sama tíma þráir hún innilega að vera eins og önnur börn og geta átt vini. En þegar hræðilegir atburðir gerast í Dúnark ferðast þær mæðgur þangað saman og Dína verður að sætta sig við gáfurnar til að bjarga mömmu sinni.

Gerður var söngleikur eftir bókinni sem sýndur var í Kaupmannahöfn og síðar meir kvikmynd, sem var gefin út árið 2015 við góðar undirtektir en hún hlaut Robert Prisen árið 2016 fyrir barna- og fjölskyldumynd ársins.

Þetta er 1. bókin af 4 í ávítaraseríunni vinsælu.
Ávítaraserían er röð ævintýrasagna fyrir börn og unglinga, sem fjalla um stúlkuna Dínu sem hefur yfirnáttúrulega hæfileika. Í seríunni lærir hún að nota hæfileika sína, en upplifir einnig mótlæti vegna þeirra og berst við ill öfl sem vilja útrýma hennar líkum.
Lene Kaaberbøl fæddist 24. mars árið 1960 í Kaupmannahöfn. Hún hefur skrifað frá því hún man eftir sér, en aðeins 15 ára gaf hún út sína fyrstu bók, um hestastelpuna Tinu. Síðan þá hefur hún skrifað yfir 30 barna- og unglingabækur og jafnvel spreytt sig á glæpasögum fyrir fullorðna. Hún er mjög hrifin af bókum J.R.R. Tolkiens og Ursulu K. LeGuin, enda gerast flestar bækur hennar í ævintýraheimi. Lene hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir bækur sínar og það hafa meira að segja verið gerðar kvikmyndir eftir nokkrum þeirra. Fyrir utan ritstörf, hefur hún unnið sem menntaskólakennari, reiðkennari og ritstjóri.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Dóttir ávítarans' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.419 andre anmeldelser af bøger.