Greifinn og enska frænkan af Victoria Holt

Spar op til

4 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Greifinn og enska frænkanaf Victoria Holt

Minella Maddox elst upp á enskum herragarði. Frá unga aldri veit hún hins vegar að henni er ekki ætlað að búa þar til frambúðar, enda er hún aðeins dóttir kennslukonunnar. Í fyrsta sinn sem hún sér hinn hrokafulla greifa Fontaines Delibes kallar hún hann „greifann á hestbaki“. Hann bæði hræðir hana og heillar og fundur þeirra verður örlagaríkur. Þrátt fyrir að hann sé frægur kvennabósi getur Minella ekki hætt að hugsa um hann og fljótlega snýst líf hennar um hann.

Greifinn ræður Minellu sem lagskonu dóttur sinnar, hún flytur með þeim til Frakklands, beint inn í ólgandi hringiðu frönsku byltingarinnar. Hún verður svo ástfangin að hún getur ekki sleppt takinu, þrátt fyrir að líf hennar sé í hættu og maðurinn sem hún elskar muni án efa verða eitt af fyrstu fórnarlömbum byltingarinnar.

Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Greifinn og enska frænkan' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.307 andre anmeldelser af bøger.