
Gurra Grís - Sögusafn
af Neville Astley & Mark Baker
Billigst lige nu
9,95 kr.
hos Bog&ide

Gurra Grís - Sögusafn
af Neville Astley & Mark Baker
Billigst lige nu
9,95 kr.
hos Bog&ide
Vælg udgave
Sammenlign priser
Forlagets beskrivelse
Gurra grís er mætt til leiks í nýju safni af sögum fyrir yngstu börnin.
Hér fylgjumst við með Gurru og Georg og öllum vinum þeirra lenda í alls kyns ævintýrum á meðan þau kanna umhverfið í kringum sig. Þau fara í fjöruferð, á sædýrasafn, í gönguferð í náttúrunni og við fáum að vita hvað Gurru fannst...
Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa!
Gurra Grís
Við lendum í spennandi ævintýrum með Gurru grís, Georg, mömmu, pabba, Siggu sebrahesti, Kötu kind, Kristjönu kanínu og mörgum fleiri! Förum í Gurrusirkus, útileiki, körfubolta og bátsferðir og búum okkur undir að hoppa í drullupollum með uppáhaldsgrísastelpunni okkar! Oink! Oink!
Það voru Neville Astley og Mark Baker sem bjuggu til hinn dásamlega heim með Gurru grís. Síðan þættirnir voru fyrst sýndir á Nickelodeon sjónvarpsstöðinni árið 2004 hefur Gurra ferðast til meira en 180 landa. Einnig hafa verið búin til leikföng og fatnaður með myndum af henni, gefnar út bækur og rúmlega 330 sjónvarpsþættir framleiddir.
Gurra er indæl fjögurra ára grísastelpa sem býr hjá mömmu sinni og pabba og litla bróður sínum Georg. Gurru finnst gaman að passa Georg litla bróður sinn og lenda í ævintýrum með honum. Með henni í för er litli, sæti bangsinn hennar. Auk þess finnst Gurru gaman að leika við bestu vinkonu sína Kötu kind, heimsækja afa og ömmu og fá heimabakaða súkkulaðiköku og skrifast á við frönsku pennavinkonuna sína. En skemmtilegast af öllu finnst Gurru að hoppa í drullupollum og hlæja og skríkja.
Ingen boganmeldelser ...Læs mere›
Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Gurra Grís - Sögusafn' i de 527 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 117.812 andre anmeldelser af bøger.
