Hávarðar saga Ísfirðings af Óþekktur

Spar op til

7 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Hávarðar saga Ísfirðingsaf Óþekktur

Hávarðar saga Ísfirðings segir frá Hávarði sem bjó á Blámýri og konu hans Bjargey Valbrandsdóttur. Eins og svo margir aðrir menn í Íslendingasögum, átti Hávarður í deilum við nágranna sinn, Þorbjörn Þjóðreksson. Eins og þekkist í slíkum deilum blandaðist alls konar fólk í málin og úr því varð meiriháttar deilusaga.

Verkið er heldur sérstætt að því leyti að það er ekki dæmigert fyrir Íslendingasögu að vera og mörgu er snúið á hvolf. Höfðingi ofsækir þegna sína, sá gamli hefnir hins unga, börn fella vígamenn mikla og konur vinna verk karla svo dæmi séu nefnd. Stíllinn er því sérstakur og sagan skemmtileg ásamt því að hafa að geyma litríkar persónur.

Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Hávarðar saga Ísfirðings' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.288 andre anmeldelser af bøger.