Klippan af Daniel Zimakoff

Spar op til

2 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

KlippanKF Mezzi #3af Daniel Zimakoff

Tómas og vinir hans í KF Mezzi eru komnir upp um deild og fá því loksins að keppa við gamla liðið sitt, KFK. En eftir sérstaklega erfiðan leik kemur Daníel, þjálfari KFK, til Tómasar, Sölva og Bergs og býður þeim aftur í gamla liðið. Þeir séu nefnilega að fara í ferð til Hollands og vanti aukaleikmenn. Taka strákarnir boðinu? Eða halda þeir áfram í KF Mezzi og fara að skipuleggja sitt eigið ferðalag? Það fer allt eftir úrslitum leiks KF Mezzi og KFK.
KF Mezzi er sería af fótboltabókum eftir Daniel Zimakoff fyrir 8-12 ára. Serían fjallar um vinina Tómas, Sölva og Berg og gleði þeirra og vandamál með þjálfara, félaga og andstæðinga. Þeir taka þátt í að stofna fótboltaliðið KF Mezzi sem er blandað lið, það eru líka stelpur með í liðinu.
Daniel Zimakoff fæddist árið 1956 og er lærður bókasafnsfræðingur, en hefur starfað við ýmislegt, hann vann meira að segja sem leikari áður en hann gerðist rithöfundur. Frá árinu 1980 hefur hann skrifað fjöldann allan af barnabókum og vann til barnabókaverðlauna danska menningarmálaráðuneytisins árið 2004.
Þegar hann er ekki upptekinn við að skrifa spilar hann fótbolta, blak, veggjatennis, tennis, les bækur, horfir á sjónvarp og keyrir mótorhjól. Hann býr í Espergærde í Danmörku með konu sinni og fjórum sonum.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Klippan' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.437 andre anmeldelser af bøger.