Litli Kláus á einn hest, en stóri Kláus fjóra. Alla daga vikunnar nema sunnudag verður litli Kláus að lána sinn eina hest fyrir plóginn með hestum stóra Kláusar. Á sunnudögum hefur hann þó hópinn fyrir sig og færist kapp í kinn við jarðvinnuna. Hann freistast til að eigna sér hrossin í huganum og í orði, en það getur stóri Kláus ekki þolað og drepur hestinn hans litla Kláusar.
Sársorgmæddur heldur litli Kláus af stað í ferð með hrosshúðina með sér í pokaskjatta. Fyrstu nóttina biðst hann gistingar hjá bændahjónum, sem hann á síðar eftir að leika laglega á. En sú brella er bara sú fyrsta í röð bellibragða sem hann notar til að ná fram hefnd sinni á stóra Kláusi.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Sagan af Kláusunum tveimur er á yfirborðinu kímileg saga þar sem valdamikið illmenni hlýtur makleg málagjöld. Ofbeldið í sögunni er þó umtalsvert og þeir félagar svífast einskis til að láta bellibrögð sín og fjárgræðgi ná fram að ganga.
Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Litli Kláus og stóri Kláus' i de 453 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 106.955 andre anmeldelser af bøger.