Skóarinn litli frá Villefranche-sur-Mer af Davíð Þorvaldsson

Spar op til

2 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Skóarinn litli frá Villefranche-sur-MerSmásagnasafn: Davíð Þorvaldsson #3af Davíð Þorvaldsson

Þessi fallega saga segir frá skóara sem liggur á sjúkrahúsi í Frakklandi. Hann hugsar til konu sinnar og dóttur, sem eiga von á honum von bráðar með lestinni. Það sem hann veit ekki er að hinir sjúklingarnir veðja sín á milli hvort hann muni lifa eða ekki.
Sögurnar sem eru hluti af smásagnasafni Davíðs Þorvaldssonar, eru: Björn formaður, Árni munkur, Skógarinn litli frá Villefranche-sur-mer, Veðmálið, Skólabræðurnir og Úr dagbók vinar, en bókina tileinkað hann móður sinni eftir andlát hennar. Bókin fékk mjög góða dóma á Íslandi og var því haldið fram að höfundur hefði einstaka innsýn í sálarlíf manna. Sögurnar bera allar stílbragð Davíðs, sem skrifaði listilega vel og í myndlíkingum sem krefjast þess að lesandi lesi milli línanna ásamt því að boðskapur sagnanna endurspegla oft tilfinningaríkar reynslur úr lífi höfundar.
Ekki þekkja margir nafn Davíðs Þorvaldssonar þrátt fyrir hæfileika hans og sköpunargáfu sem rithöfundur. Hann lifði stutta ævi vegna veikinda, en gaf út tvö smásagnasöfn, Kalviði og Björn formaður, en það síðarnefndna þýddi hann sjálfur á ensku til útgáfu ásamt því að sögur hans voru birtar í virtu frönsku riti. Verk hans endurspegla gildi Davíðs, sem vildi leggja alþýðunni lið með lýsingum og stíl sagnanna, sem jafnan bera þann boðskap að sá sem þurft hefur að hafa fyrir lífinu er vitrari en sá sem ekkert hefur reynt.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Skóarinn litli frá Villefranche-sur-Mer' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.368 andre anmeldelser af bøger.