Þriðja brúðurin af Victoria Holt

Spar op til

24 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Þriðja brúðurinaf Victoria Holt

Favel Farrington hittir Roc Pendorric á eyjunni Capri, þar sem hún býr með föður sínum. Það er ást við fyrstu sýn og Favel er mjög hamingjusöm þegar hún kemur á nýja heimilið sitt, Pendorric í Cornwall, nýgift. Systir Rocs og fjölskylda taka henni opnum örmum og það kætir hana að staðarbúar gefa henni strax titilinn „brúðurin frá Pendorric." En gleði Favel breytist fljótt í áhyggjur. Á veggjum kastalans hanga myndir af fyrri brúðum Pendorric – ungum konum sem allar létust við dularfullar aðstæður. Sagan segir að norn hafi lagt álög á brúðir Pendorric: Brúðurin mun deyja ung og ganga aftur í kastalanum þar til ný brúður tekur við af henni. Smám saman læðist óttinn inn í líf Favel. Ill augu virðast fylgja henni um allt og eitt óhappið tekur við af öðru. Fljótlega verður Favel að viðurkenna að þjóðsagan gæti verið sönn – og að einhver sé að reyna að drepa hana. Skyndilega fá orðin „þar til dauðinn aðskilur okkur" nýja og ískyggilega merkingu ...

Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Þriðja brúðurin' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.437 andre anmeldelser af bøger.