Tindátinn staðfasti af H.C. Andersen

Spar op til

8 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Tindátinn staðfastiaf H.C. Andersen

Í tindátaöskjunni er einn sem sker sig úr. Sá er tindátinn sem vantar á annan fótinn, sökum þess að tinið var uppurið þegar búið var að steypa bræður hans. Dátinn lætur fótskortinn þó ekki á sig fá og stendur jafn stöðugur og hinir. Saman flytja þeir á nýtt heimili þar sem kennir ýmissra grasa í leikfangaherberginu. Mest af öllu heillast tindátinn þó af fagurri dansmey, sem líkt og hann stendur á öðrum fæti. Hún er þó umtalsvert hærra sett og býr í kastala. Það kemur ekki í veg fyrir að tindátinn unni henni hugástum.

Þegar nóttin leggst yfir og heimilisfólkið fer að sofa bregða barnagullin á leik. Það gengur á með dansi og látum, hjá öllum nema tindátanum og dansmeynni. Bæði standa staðföst á sínum eina fæti og horfast á af einbeitni. En tindátinn átti eftir að taka á honum stóra sínum og lenda í ýmsum hremmingum áður en hann fengi að nálgast ástina sína.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Tindátinn staðfasti" er ein þeirra sagna Andersens þar sem leikföngin vakna til lífsins, og eiga slíkar sögur enn í dag sér beina leið inn í barnshjörtun. Tindátinn er ekki eins og allir hinir, en lætur það ekki á sig fá og stendur staðfastur á sínu. Sagan hans er falleg frásögn um það, hvernig það að eiga sér takmark og ástríðu getur hjálpað hverjum sem er að takast á við erfiðleika í lífinu. rn
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Tindátinn staðfasti' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.307 andre anmeldelser af bøger.