Í "Vertu góður við mig" hittum við Klás og Lenu aftur, vikuna eftir að þau koma heim úr skólaferðalaginu. Saman reyna þau að átta sig á því hvað það þýðir að vera ástfangin, því það getur bæði falið í sér sterka ást ásamt óþæginlegu óöryggi.
Bókin er sjálfstætt framhald af "Sjáðu sæta naflann minn". Sögurnar af Klás og Lenu urðu gríðarlega vinsælar á meðal unglinga á Norðurlöndunum, sem má skýra af því að skrifað er af mikilli hreinskilni og varfærni um þau vandamál sem flestir unglingar þekkja eða hafa jafnvel sjálf gengið í gegnum. Hans Hansen (f. 1939) er danskur rithöfundur og fyrrverandi kvikmyndaráðgjafi. Hann hefur skrifað fleiri en 50 barna- og unglingabækur sem hafa margar orðið gífurlega vinsælar og verið þýddar um allan heim.
Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Vertu góður við mig' i de 511 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 100.891 andre anmeldelser af bøger.