Víglundar saga af Óþekktur

Spar op til

7 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Víglundar sagaaf Óþekktur

Víglundar saga er skáldsaga og ein fyrsta þeirrar greinar hér á landi. Sögusvið bókarinnar er Snæfellsnes, Noregur og austfirðir að mestu. Hún gerist á 10. öld en talið er að hún hafi verið rituð á síðari hluta 14. aldar. Hún er svo varðveitt í tveimur skinnhandritum frá 15. öld.

Verkið fjallar um ástir, líf og áskoranir þeirra Víglundar og Ketilríðar. Þau kynnast þegar Ketilríður er send í fóstur til foreldra Víglundar ung að aldri. Gerist það svo að Víglundur heldur til Noregs og Ketilríður er lofuð bónda nokkrum austur á fjörðum þegar hann kemur heim. Rekur Víglund einmitt á land fyrir austan, sökum vinda og þykist hann þar kannast við konu bóndans. Sagan tekur óvænta stefnu fyrir lesandann og ýmislegt óvænt kemur í ljós.

Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Víglundar saga' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.288 andre anmeldelser af bøger.