Helreiðin af Selma Lagerlöf

Spar op til

11 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Helreiðinaf Selma Lagerlöf

Jódís er fátæk systir í Hjálpræðishernum, sem er komin nálægt dauðans dyr eftir baráttu við lungnabólgu. Í langan tíma hefur líf hennar gengið sinn vanagang en þegar hún byrjar að missa styrk er hún send á heilsuhæli. Þegar hún áttar sig á því að hún eigi ekki langt eftir, biður hún um að fá að hitta Davíð Hólm, alkóhólista sem vinnur í fátækrahverfinu. Hún hefur í gegnum sitt líf verið staðráðin í því að koma honum á beinu brautina, en með vilja sínum til þess að hjálpa hefur hún aðeins gert aðstæðurnar mun verri fyrir alla í kring. Hennar hinnsta ósk er að fá eitt tækifæri í viðbót til þess að breyta rétt.

Helreiðin er sannkölluð jólasaga sem gerist í kringum áramótin í byrjun 20. aldarinnar í litlum bæ í Svíþjóð. Hún var skrifuð til þess að vekja almenning til umhugsunar um smitleiðir berkla ásamt því að koma siðferðislegum skilaboðum á framfæri. Gerðar hafa verið kvikmyndir byggðar á bókinni, eins og The Phantom Carriage, í Svíþjóð og Frakklandi við góðar undirtektir.
Selma Lagerlöf (1858-1940) var sænskur rithöfundur og kennari. Hún skrifaði sína fyrstu skáldsögu „Göst Berlings saga" árið 1891 og fékk fyrir hana Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrst Svía árið 1909. Lagerlöf er einn ástsælasti rithöfundur allra tíma og var einnig fyrsta konan til þess að vera tekin inn í Sænsku Akademínu árið 1914.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Helreiðin' i de 453 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 106.828 andre anmeldelser af bøger.